ELDRI BORGARAR UNDIR SUÐRÆNNI SÓL
Ég hallaði mér út um gluggann og horfði upp eftir þröngri götunni iðandi af lífi. Ég var stödd í gömlu hverfi í Barcelona. Það var að nálgast síestu og konurnar farnar að kaupa í matinn. Karlarnir stóðu á götuhornum og spjölluðu. Margir sem ég sá voru eftirlaunaþegar, en kannski veitti ég þeim bara mesta athygli.
Augu mín staðnæmdust við eldri konu með innkaupatösku. Hún var í rósóttum litfögrum kjól, berfætt og gekk glaðlega niður eftir götunni í átt að glugganum mínum. Hún komst þó ekki langt því allir sem þekktu hana virtust þurfa að tala við hana. „Hvaða kona er nú þetta?“ hugsaði ég með mér.
Brátt áttaði ég mig á, að upp eftir allri götunni mátti sjá svipaða sjón. Eldri borgarar að spjalla. Útivera, hreyfing og mannleg samskipti samofin daglegu lífi og hversdagslegum hlutum eins og að kaupa í matinn.
Mér varð hugsað til eldri borgara á Íslandi, aðstæðna þeirra, félagslegra samskipta, heilsunnar, veðráttunnar og vetrarins. Margur eldri borgarinn býr við það í harðbýlu landi, að komast sjaldan út úr húsi yfir veturinn og geta því lítið stundað hreyfingu. Kuldinn sækir að lúnum beinum og vöðvum, sem stirðna upp og stífna. Önnum kafnir afkomendur hafa oft minni tíma en þeir vildu, fyrir eldri kynslóðir.
Eldri borgarar búa því oft við einangrun sem veðráttan bætir ekki úr. Veðráttan er glíma Íslendingsins sem nútímamaðurinn hefur að hluta leyst með upphituðum húsum, bílaeign og hreyfingu í líkamsræktarsölum.
Margur eldri borgarinn hefur átt þess kost að leita á suðlægari slóðir undanfarna áratugi. Sumir um skamman tíma aðrir lengri. Þar hefur fólk getað notið félagskapar við hvert annað og innfædda. Fengið hreyfingu með göngu í hlýju loftslagi þar sem vöðvar mýkjast, beinin liðkast og verkir minnka. Hverfa jafnvel.
Í meir en tvo áratugi hef ég verið svo lánsöm að hafa verið vitni að því hvernig eldri borgarar landsins okkar hafa blómstrað á suðlægum slóðum. Vaknað til lífsins. Það hefur verið gleðileg reynsla, lærdómsrík og vekjandi. Það varð svo skýrt fyrir mér að góð heilsa, dagleg hreyfing og æskufjör er ekki sjálfsagður hlutur. Hvað þá dagleg samskipti við aðrar mannverur.
Í þessari samveru hef ég orðið vitni að raunverulegri umbreytingu fólksins okkar. Gráminn í kinnum hverfur dag frá degi og roði kemur í staðinn, þung sporin léttast, klæðnaðurinn veður litríkari og konur og karlar skrýðast björtum glöðum sumarlitum. Hlátur heyrist oftar og verður bjartari. Kátína og glettni slást í för og verða kærkomnir ferðafélagar. Líkamlegt og andlegt atgervi tekur daglegum framförum.
Ár eftir ár hef ég orðið vitni að og fengið að njóta þess að sjá þessa upprisu eldri borgaranna okkar á erlendri grundu. Ég þakka Guði fyrir það veganesti.
Það er fjársjóður sem yljar mér og endist ævilangt. Því í honum eru fólgnar svo fagrar myndir af eldra fólki, sem blómstrar undir suðrænni sól, umvafið hlýju sem gælir við vöðva og lúin bein, í glaðværu samfélagi þar sem hlýhugur og vinarþel ríkir.
Guð blessi þig og þau öll.
Séra Karítas