Fara í efni
LUTHER

Íslenskur söfnuður á Spáni

  • Forsíða
  • Hugvekjur
  • Viðburðir
  • SöfnuðurinnStækkaðu
    • Samþykktir
    • Prestar
    • Stjórn
    • Varastjórn
    • Félagsgjald
Skrá mig!
LUTHER
Heim /

Sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir

Ragnheiður Karítas Pétursdóttir

Séra Ragnheiður Karítas vígðist til prestsþjónustu til Ingjaldshólsprestakalls á Snæfellsnesi. Hún þjónað auk þess í afleysingum í Staðarstaðar- og Ólafsvíkurprestaköllum og í Noregi um árabil. 

Hún hefur því víðtæka reynslu af prestsstörfum bæði í íslensku þjóðkirkjunni og norsku kirkjunni.

Hún lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands 1999 og meistaraprófi í sálgæslufræðum frá HÍ árið 2007.

Sr. Ragnheiður hefur einnig víðtæka starfsreynslu og menntun frá Spáni. Árið 2002 lauk hún lauk diplomanámi  sálgæslu frá Ecsuela de pastoral de la Salud, í Madrid. Auk þess hefur hún lokið námskeiðum í sálfræði, sálgæslu og guðfræði við 3 háskóla á Spáni, í Madrid, Murcia og Alicante.

Um nokkurra ára skeið þjónaði sr. Ragnheiður Íslendingum í Alicante í sumarleyfum sínum. Hún hélt messur þar þrisvar sinnum á ári í norsku sjómannakirkjunni, skírði, fermdi, var með bálfarir, sálgæsluviðtöl, heimsótti fanga í fangelsi og sjúklinga á sjúkrahúsum.

Meðfram diplómanáminu í sálgæslu veturinn starfaði hún við sálgæslu á Hospital San Rafael í Madrid.

Sr.Ragnheiður Karítas starfaði einnig um nokkurra ára skeið sem yfirfararstjóri hjá Plúsferðum á Benidorm og Portúgal og hlaut þar mikla reynslu af því að þjóna Íslendingum erlendis, ekki síst þegar áföll dundu yfir.

Luther - Íslenskur söfnuður á Spáni

Kennitala: 670122-0770

Banki: 0325-26-002515

Prestur Alicante: +34 602 69 63 93

Prestur Gran Canaria: +354 858 7282

Viðburðir

  • Viðburðir framundan
  • Messur til vors 2024
  • Fermingarfræðsla

Gagnlegir hlekkir

  • Um söfnuðinn
  • Markmið
  • Samþykktir
  • Prestar og stjórn
  • Um presta og djákna
  • Hugvekjur
  • Hafa samband

Já, ég vil skrá mig í söfnuðinn á Spáni

Skráning

© 2025 LUTHER - Íslenskur söfnuður á Spáni

  • Forsíða
  • Hugvekjur
  • Viðburðir
  • Söfnuðurinn
    • Samþykktir
    • Prestar
    • Stjórn
    • Varastjórn
    • Félagsgjald