Fara í efni
LUTHER

Íslenskur söfnuður á Spáni

  • Forsíða
  • Hugvekjur
  • Viðburðir
  • SöfnuðurinnStækkaðu
    • Samþykktir
    • Prestar
    • Stjórn
    • Varastjórn
    • Félagsgjald
Skrá mig!
LUTHER
Heim /

Jóna Lísa Þorsteinsdóttir

Eftir að hafa starfað sem þýskukennari í Verslunarskóla Íslands í ellefu ár vann séra Jóna Lísa í nokkur ár við áfengismeðferð í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi. 

Hún lauk embættisprófi 1995. Haustið 1996 og tók hún við starfi fræðslufulltrúa Þjóðkirkjunnar í Hólastifti og var vígð til þess starfs vorið 1997. Haustið 1999 var hún svo skipuð prestur við Akureyrarkirkju.

Árið 2005 lét hún gamlan draum um starf fyrir Íslendinga á Gran Canaria rætast. Í sex vetur þjónaði hún með fulltingi biskups Kanaríeyja og kaþólska prestsins Jesus Marques, prestur landa minna í kirkjunni Templo Ecumenico á Ensku ströndinni. Kirkjan Templo Ecumenico er alþjóðleg og þverkirkjuleg og padre Jesus var sá sem leiddi starfið þann tíma sem sr. Jóna Lísa þjónaði þar.

 Á öðru ári þjónustunnar hóf Þjóðkirkjan að styrkja starfið og gerði það alls fjóra vetur.  Sr.Jóna Lísa var í 50% starfi sem fararstjóri og vann sömuleiðis við þýðingar og náði þannig að framfleyta sér.

Þessi ár voru annasöm, viðburðarík og gefandi, en í kjölfar Hrunsins hvarf styrkurinn og hún þurfti að gefast upp og halda heim í árslok 2011. Sr. Jóna Lísa var svo lánsöm að fá að starfa sem ferðamanna- og kvöldkirkjuprestur við Akureyrarkirkju yfir sumartímann árin sem hún hafði vetrardvöl á Gran Canari, auk þess sem hún var afleysingaprestur þar þegar á þurfti að halda.

Hún ákvað síðan þegar hún heyrði um LÚTHER íslenska söfnuðinn á Spáni að ganga til liðs við hann og gleðst yfir því að vera gefið tækifæri til að leggja þeirri þjónustu lið, þá vetrarmánuði sem hún dvelur á Gran Canari.

Luther - Íslenskur söfnuður á Spáni

Kennitala: 670122-0770

Banki: 0325-26-002515

Prestur Alicante: +34 602 69 63 93

Prestur Gran Canaria: +354 858 7282

Viðburðir

  • Viðburðir framundan
  • Messur til vors 2024
  • Fermingarfræðsla

Gagnlegir hlekkir

  • Um söfnuðinn
  • Markmið
  • Samþykktir
  • Prestar og stjórn
  • Um presta og djákna
  • Hugvekjur
  • Hafa samband

Já, ég vil skrá mig í söfnuðinn á Spáni

Skráning

© 2025 LUTHER - Íslenskur söfnuður á Spáni

  • Forsíða
  • Hugvekjur
  • Viðburðir
  • Söfnuðurinn
    • Samþykktir
    • Prestar
    • Stjórn
    • Varastjórn
    • Félagsgjald